Um okkur

Við erum mæðgur Þórunn Lilja og Helena Daley. Ég móðirinn ólst upp á Skarðsströnd í Breiðafirðinum og þaðan hefur nafnið Daley merkilega þýðingu fyrir mér því þetta eru Dalirnir og Eyjarnar svo þegar það kom að því að velja nafn bæði á dóttirina eldri og á kertagerðina þá kom ekki neitt annað en Daley til greina. Fyr á árinu 2024 eignaðist Helena Daley systir, og þegar svoleiðis gerist og fékk yngri dóttirinn aðeins meiri athygli heldur en eldri og okkur vantaði einhvað sem við gætum átt saman og gert saman og þá koma upp sú hugmynd að búa til kertagerð og vinna þá einungis með hágæða eiturefnalausu vaxi og ilmolíum. En okkur langaði ekki að gera venjuleg kerti okkur langaði að gera einhvað annað sem er öðruvísi en venjuleg kerti og þá lögðum við hausinn okkar í bleyti og út kom þessi frábæru kerti sem við gerum saman. Þetta er okkar stund saman, þetta er einhvað sem við mæðgurnar eigum og munum alltaf eiga saman, okkar gæðastund. Þessi kerti eru gerð af mjög mikilli ást, vandvirkni, hlátri, tárum og hlýju, og ekki skemmir það fyrir að þau eru eiturefnalaus, ósa ekki og eru með yndislegri lykt.

Shopping Cart
Scroll to Top